FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU GOTT ENDARAÐHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR. Um er að ræða fallegt og velskipulagt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og sólpalli. Nánari lýsing: Neðri hæð: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Inn af forstofu er gengið inn á gestasnyrtingu með flísum á gólfi. Einnig er innangengt í bílskúrinn. Eldhús með ágætri innréttingu, parketi á gólfi og borðkrók við glugga . Hol með flísum, úr holi er gengið upp á eftri hæðina. Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi. Efri hæð: Gengið er upp á efri hæð um stiga frá holi og er komið inn í rúmgott hol sem er nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi með útbyggðum glugga (sólstofu), möguleiki á að breyta því í þriðja barnaherbergið. Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkeri, sturtuklefa, innréttingu og glugga. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og miklu skápaplássi, gengið úr hjónaherbergi út á svalir. Tvö góð barnaherbergi með parketi á gólfi. Skammbitaloft er yfir hluta af holi á efri hæðinni, notað í dag sem bókaherbergi. Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Þinglýsingargjöld vegna kaupsamnings, afsals, veðskuldabréfs, veðleyfis o.fl. er kr. 2000,- hvert skjal. Stimpilgjald kaupsamnings er 0,4% af heildarfasteignarmati. Umsýslukostnaður sbr. kauptilboð. Lántökugjald er almennt 1% af lánsfjárhæð, sé um það að ræða.


