S: 562 4250
Naustavör 52, 200 Kópavogur
89.500.000 Kr.
Opið hús: 23. mars 2023 kl. 16:45 til 17:15.

Laus við kaupsamning. Opið hús: Naustavör 52, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. mars 2023 milli kl. 16:45 og kl. 17:15. Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur H Valtýsson lgf. s. 865 3022 eða gudmundur@fjarfesting

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 2JA HERB. ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ Í NÝJU LYFTUHÚSI VIРNAUSTAVÖR 52 Í KÓPAVOGI.

Glæsileg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 77,6 fm. Sérgeymsla við bílastæði í kjallara er 20,7 fm. Samtals er eignin því skráð 97,6 fm.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás. Blöndunartæki frá Tengi og AEG eldhústæki.
Hiti er í gólfum.
Naustavör 52-58 er nýtt 4ra hæða fjölbýlishús sem er í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veitir Edda í síma 8450425 (edda@fjarfesting.is)

Nánari Lýsing:
Komið er inn í forstofu með fataskáp.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum.
Björt stofa með útgengi út á suðaustursvalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi og fallegri innréttingu frá Brúnás. Þvottahús er inn á baðherbergi

Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Íbúðin sjálf verður afhent við kaupsamning en sameign, lóð og bílgeymsla í mars 2023.
 
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.
 
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2500,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
 

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
97 fm
Herbergi:
2
Stofur:
1
Svefnherbergi:
1
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2022
Lyfta:
Fasteignamat:
78.600.000
Brunabótamat:
64.950.000
Áhvílandi:
0