S: 562 4250
Naustavör 38, 200 Kópavogur
130.900.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU  EINSTAKLEGA GLÆSILEGA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í FALLEGU ÁLKLÆDDU LYFTUHÚSI VIРNAUSTAVÖR 38 Í KÓPAVOGI.

Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í fallegu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 110,9 fm. Sérgeymsla í kjallara er 8,3 fm.  Samtals er eignin því skráð 119,2 fm.
Mikið sjávarútsýni.
Tvennar svalir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás og fallegum gólfefnum.
Hiti er í gólfum.
Aukin lofthæð er í stofu.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.

Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting)
Nánari Lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Sjónvarpshol með útgengi út á mjög rúmgóðar svalir.
Eldhús með glæsilegri innréttingu (hvít og bæsuð eik) og vönduðum eldhústækjum.
Mjög björt stofa með aukinni lofthæð og útgengi út á svalir.  Mikið sjávarútsýni er frá stofu.
Hjónaherbergi með fataherbergi.
Svefnherbergi með  fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.

Hágæða Stone Amani Bronze flísar frá Birgisson eru í öllum rýmum fyrir utan baðherbergi og þvottahús. Á baðherbergi eru öll blöndunartæki úr burstuðu stáli frá Vola, dönsk hönnun og jafnframt þau vönduðustu sem fást hjá Tengi.
Í eldhúsi eru tveir ofnar frá AEG, báðir voru uppfærðir frá því sem upprunalega fylgdi íbúðinni, sama gildir um ísskáp og uppþvottavél. Í eldhúsi er einnig krani frá Dornbracht, þýsk hönnun og jafnframt sá vandaðasti sem völ er á hjá Tengi.
Stofu- og sjónvarpsveggir eru viðarklæddir með hlýlegri eik frá Parket og Gólf.

 Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali. 3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
119 fm
Herbergi:
4
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2020
Lyfta:
Fasteignamat:
91.850.000
Brunabótamat:
70.320.000
Áhvílandi:
0