FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 3JA- 4RA HERB. ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í NÝJU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 58 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 3ja-4ra herbergja íbúð á 3. hæð, merkt 310 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 120,8 fm. Sérgeymsla í kjallara er 7,4 fm. Samtals er eignin því skráð 128,2 fm.
Mikið sjávarútsýni.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Vestursvalir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás. Blöndunartæki frá Tengi og AEG eldhústæki.
Hiti er í gólfum.
Naustavör 52-58 er nýtt 4ra hæða fjölbýlishús sem er í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi.
Nánari lýsing:Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum. Þvottahús inn af eldhúsi með flísum á gólfi og innréttingu.
Mjög björt stofa, útgengi út á útsýnissvalir til vesturs. Mikið sjávarútsýni er frá stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Hjónaherbergi með fataherbergi.
Forstofuherbergi með fataskáp.
Möguleiki er á að útbúa auka herbergi/sjónvarpsrými.
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Afhending á íbúð, sameign, lóð og bílageymslu verður í mars 2023.
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2500,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.