FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 4RA HERB. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í FALLEGU LYFTUHÚSI VIÐ GRANDAVEG 42E Í VESTURBÆ REYKJAVÍKUR.
Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu lyftuhúsi í verðlaunuðu umhverfi en Grandavegur 42 fékk fékk fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 í flokknum fjölbýlishúsalóð með vandaðri ásýnd, fjölbreyttum notkunarmöguleikum og góðu gróðurvali.
Íbúðin sjálf er 112 fm. Sérgeymsla í kjallara er 8,8 fm. Samtals er eignin því skráð 120,8 fm. Suðvestur svalir sem eru 23m2 með svalalokun og geislahiturum eru ekki inni í upptalinni fermetra tölu.
Sjávarútsýni.
Stórt stæði í lokaðri bílageymslu. Búið er að leggja fyrir bílhleðslustöð í stæðið.
Sérsniðið gardínukerfi frá Zenus fylgir. Kvartsteinn frá Granítsmiðjunni í sólbekkjum, eldhús- og baðherbergisborðplötum.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum, fataskápum og fallegum gólfefnum.
Gegnheilt eikarparket frá Parka er á gólfum og ljósgráar flísar einnig frá Parka. Dimmer er á flestum ljósum.
Íbúðinni var töluvert breytt frá upphaflegum teikningum og eigendur lögðu áherslu á vandað efnisval, viðbætur í eldhúsi, á baðherbergi, þvottahúsi og vandaðan frágang. Útbúin var sjónvarpsstofa á kostnað svefnherbergis og gestasnyrtingu breytt í þvottahús. Skápapláss er mikið í íbúðinni þar sem allir skápar ná upp til lofts.
Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting)
Nánari lýsing: ForstofaKomið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp sem nær upp í loft.
Herbergi 1Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi 2Barnaherbergi með parketi á gólfi og tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Herbergi 3 Sjónvarpsstofurými (svefnherbergi á teikningu) með parketi á gólfi. Hægt er að loka sjónvarpsstofurýminu með rennihurð eða setja upp léttan vegg til að fá þar aftur lokað svefnherbergi.
Baðherbergi og þvottahúsBaðherbergi með gráum gólfflísum og hvítum veggflísum, baðkari með sturtuhaus, fallegri innréttingu með borðplötu úr kvartssteini frá Granítsmiðjunni og niðurfelldum vaski.
Inn af baðherbergi er þvottahús sem er einnig með flísum á gólfi, skolvaski, innréttingu, hillum og rúmar þvottavél og þurrkara.
EldhúsEldhús með flísum á gólfi, glæsilegri HTH innréttingu úr liggjandi eik og hvítlökkuð þar sem skápar ná upp í loft, einnig eru sökkulskúffur í eldhúsinnréttingunni, skápar eru líka á þeim hluta eldhúsinnréttingarinnar sem snýr fram í stofuna, borðplötur eru úr kvartssteini og eldhústækin eru vönduð frá AEG. Ljósar strimlagardínur frá Zenus fylgja sem hægt er að nota til að skerma eldhúsið af.
Stofa og 23m2 yfirbyggðar svalir - ekki í fermetratöluRúmgóð stofa með gegnheilu eikarparketi á gólfum og útgengi út á flísalagðar, stórar bjartar suðvestur svalir með svalalokun og geislahiturum. Svalirnar eru 23 m2 og eru ekki inni í fermetratölu íbúðarinnar og nýtast sem auka rými allt árið um kring.
Sjávarútsýni er frá svölum.
Bílastæði og geymslaÍ kjallara er góð sérgeymsla, stórt stæði í lokaðri bílageymsla, búið er að leggja fyrir bílhleðslustöð í stæðið.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingargjald er 2500,- kr af hverju skjali. 3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.