EINSTÖK STAÐSETNING !EINBÝLISHÚS MEÐ TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR VIÐ DALHÚS 112 REYKJAVÍK.
FALLEGT UMHVERFI INNST Í LÍTILLI BOTLANGAGÖTU
Vel viðhaldið fimm herbergi, eign á góða stað. Húsið er byggt árið 1992.
Möguleiki á að stækka húsið í kjallara sem hefur ekki verið nýttur.
Húsið sjálft er 179 fm. bílskúr 45 fm. samtals 224 fm
Fyrirhugað fasteignamat 2024 er 138.700.000 kr.Nánari upplýsingar veita Edda í síma 845-0425 (edda@fjarfesting.is) Nánari lýsing: Komið er inn í bjart anddyri með flísum á gólfi og fataskáp og forstofuherbergi.
Stórt og gott eldhús með hvítri innréttingu, granít er á eyju og parket á gólfi.
Stór og björt stofa með eikarparketi, arin og rúmgóðu sólhúsi.
Gengið út á góða suðurverönd. opið gróið svæði á tvo vegu í kringum húsið.
Rúmgott hjónaherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Þrjú barnaherbergi eru með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, með sturtu, baðkari og innréttingu.
Þvottahús með innréttingu og salerni.
Góður bílskúr sem er 45 fm. epoxi borið gólf sem fer upp á vegg, stórt geymsluloft er í bílskúr.
Ástand:
Eignin hefur fengið gott viðhald og er allt í góðu standi sem þarf að viðhalda eins gengur.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2500 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.