FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU EINSTAKLEGA GLÆSILEGA 4RA TIL 5 HERB. ÍBÚÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í FALLEGU ÁLKLÆDDU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 32 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 4ra til 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 121,8 fm. Sérgeymsla í kjallara er 13,4 fm. Samtals er eignin því skráð 135,2 fm.
Mikið sjávarútsýni.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás og fallegum gólfefnum.
Hiti er í gólfum.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting)Nánari Lýsing:Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, glæsilegri innréttingu (hvít og eik), steinborðplötum, eldunareyju og vönduðum eldhústækjum.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir. Mikið sjávarútsýni er frá stofu.
Borðstofa (sem er núna nýtt sem svefnherbergi) með parketi á gólfi. Auðvelt að fjarlægja vegg og nýta sem borðstofu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi.
Tvö barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali. 3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.