FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í NÝLEGU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 20 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fallegu nýlegu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 111 fm. Sérgeymsla í kjallara er 11 fm. Samtals er eignin því skráð 122 fm.
Mikið sjávarútsýni, bæði yfir smábátahöfnina og beint til sjávar.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Timburverönd með útsýni og stórar yfirbyggðar svalir með sjávarútsýni.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás.
Hiti er í gólfum.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað.
Tengingar komnar fyrir hleðslustöð við stæðið í bílageymslu.
Laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigurjónsson í síma 846-1511. Tölvupóstur gudjon@fjarfesting.is.Nánari Lýsing:Komið er inn í forstofu með parketi og góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri hvítri innréttingu, vönduðum eldhústækjum og steinplötum á borðum.
Borðstofa með parketi og útgengi út á stóra timburverönd með útsýni yfir smábátahöfnina.
Björt stofa með parketi og útgengi út á stórar yfirbyggðar útsýnisvalir.
Hjónaherbergi með parketi og fataherbergi.
Stórt forstofuherbergi með parketi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús inn af forstofu með flísum á gólfi og innréttingu
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameignin er öll hin snyrtilegasta.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.