S: 562 4250
Grensásvegur 56, 108 Reykjavík
51.900.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ Í SÖLU SNYRTILEGA 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ VIÐ GRENSÁSVEG 56 Í REYKJAVÍK.
Rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð.
Eignin er skráð skv. HMS 62,1 fm.  Íbúðin sjálf er 58 fm. og sérgeymsla í kjallara er 4,1 fm.

Upplýsingar gefur  Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).
Nánari Lýsing:
Komið er inn í gang með flísum á gólfi.
Svefnherbergi með dúk á gólfi og fataskáp.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, flísum á gólfi og borðkrók.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkeri og vaskaskáp.

Í kjallara er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Að utan hefur þak verið nýlega endurnýjað og suðurgafl var lagfærður árið 2023. Árið 2023 voru skólplagnir undir plötu lagfærðar.

Þinglýstur eigandi eignarinnar er dánarbú.  Hafa erfingjar ekki búið í íbúðinni og þekkja því ekki ástand hennar.  Eru væntanlegir kaupendur hvattir til að skoða eignina eins vel og kostur er.

Kostnaður kaupanda:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   2.  Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.
 

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
62 fm
Herbergi:
2
Stofur:
1
Svefnherbergi:
1
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
1961
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
50.150.000
Brunabótamat:
27.900.000
Áhvílandi:
0