FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGT PARHÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ VIÐ LANGHOLTSVEG 173 Í REYKJAVÍK.Fallegt parhús á 3 hæðum með aukaíbúð og bílskúr við Langholtsveg 173 í Reykjavík.
Húsið sjálft er 251,0 fm. og bílskúrinn er 24,7 fm., samtals er eignin því 275,7 fm.
Aukaíbúð er 2ja til 3ja herbergja og er með sérinngang.
Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting)
Nánari Lýsing:
Miðhæð:Komið er inn í
forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Inn af forstofu er
gestasnyrting með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Eldhús (sem er opið inn í borðstofu) með glæsilegri hvítlakkaðri innréttingu, steinborðplötum (Quartz), spanhelluborði, tvöföldum ísskáp (sem fylgir) og innbyggðri uppþvottavél. Parket er á gólfi í eldhúsi.
Efri hæð:Gengið er upp á efri hæð um steyptan teppalagðan stiga.
Hol með parketi á gólfi. (Einnig hægt að nýta sem barnaherbergi)
Stórt
hjónaherbergi með parketi á gólfi, miklum skápum, útgengi út á svalir og inngengi inn á baðherbergi.
Tvö góð barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísum, innréttingu, sturtu og hornbaðkeri.
Neðri hæð:
Gangur með teppi á gólfi.
Þvottahús með innréttingu.
Geymsla.
Aukaíbúð: Búið er að stúka hluta neðri hæðar undir 2ja til 3ja herbergia aukaíbúð með sérinngangi frá garði. Auðvelt er að sameina aukaíbúðina með aðalíbúðinni. Hún skiptist í eldhús, baðherbergi, geymslu, stofu, svefnherbergi og gluggalaust herbergi.
Góður
bílskúr sem er 24,7 fm. að stærð og með góðum gluggum.
Garður er í góðri rækt, með fjölbreyttum og fallegum plöntum og trjám, upphækkað matjurtabeð. Hellulögð upphituð stétt er niður með húsinu og fyrir aftan hús að inngangi í aukaíbúð. Timburpallur í bakgarði er kominn til ára sinna og þarfnast endurnýjunar. Heimkeyrsla er snyrtileg, og þakskyggni yfir bílastæði fyrir framan bílskúrinn.
Húsið hefur fengið gott viðhald alla tíð. Árið 2020 voru 8 gluggar endurnýjaðir í húsinu. Einnig er búið að endurnýja svalahurð á efri hæð. Þak var lagfært árið 2018. Hús og þak var málað árið 2020. Eldhús var endurnýjað árið 2017 ásamt parketi í eldhúsi, stofu, borðstofu og holi.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.