FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 5 HERB. ÞAKÍBÚÐ MEÐ ÞAKSVÖLUM Í NÝJU LYFTUHÚSI VIÐ FOSSVOGSVEG 8-36 Í REYKJAVÍK.Glæsileg og vel skipulögð
5 herbergja penthouse sérhæð, merkt 0204 (Fossvogsvegur 10) í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Birt stærð íbúðar er skráð
233,5 fm. að stærð.Sérlyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina.
Sérinngangur.Stórar þaksvalir.Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum frá Brúnás. Vönduð AEG eldhústæki þ.m.t. innbygður frystiskápur, innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, vínkælir, bakarofn og örbylgjuofn. Baðherbergi verður flísalagt gólf og veggir. Íbúðin er með gólfhita. Fossvogsvegur 8-34 er nýtt 3ja hæða tengihús sem er í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.
Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir (penthouse) eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu.
Smelltu hér til að skoða söluvef fyrir Fossvogsveg https://vefir.onno.is/bygg/fossvogsvegur/?sref=fjarfestingPantið skoðun hjá sölumönnum Fjárfestingar Fasteignasölu:Óskar sími 822-8750
[email protected]Guðjón sími 846-1511
[email protected]Hildur sími 661-0804
[email protected]Smári sími 864-1362
[email protected]Edda sími 845-0425
[email protected]Guðmundur sími 865-3022
[email protected]Nánari lýsing:Komið er inn á miðhæð inn í sérstigagang, þar sem er
sérlyfta.Efri hæð: Komið er inn í hol með góðum fataskáp.
Eldhús með
glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson.
Stofur með útgengi út á
stórar þaksvalir.
Hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Tvö góð svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Neðsta hæð:
Stigagangurinn (og lyftan) gengur frá íbúðinni og alveg niður á neðstu hæð þar sem er bílageymsla. Sérgeymsla er við hlið stigagangs.
Stæði í bílageymslunni fylgirSameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.