S: 562 4250
Furuvellir 13, 221 Hafnarfjörður
156.900.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ AÐ FURUVÖLLUM 13 Í HAFNARFIRÐI. 
Um er að ræða vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum tvöföldum bílskúr á fallegum og góðum stað.
Húsið er vel staðsett á hornlóð með veröndum, heitum potti, góðum útigeymslum og góð bílastæði.
Vandað hús með góðum innréttingum og gólfefnum, gólhiti er í öllu húsinu.
Fallegt og barnvænt hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, sund og útivist.

Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasnyrting með flísum á gólfi og möguleika á að setja upp sturtu (tengingar til staðar).
Fallegt opið eldhús með flísum á gólfi og borðkrók við glugga.
Rúmgóð og björt samliggjandi stofa og borðstofa með flísum á gólfi. Stofurnar eru með glugga á þrjá vegu. Gengið út á verönd úr stofu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum, gengið út á verönd úr hjónaherbergi.  
Rúmgott sjónvarpshol.
Tvö barnaherbergi sem búið er að sameina í eitt stórt herbergi, auðvelt að breyta til baka.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góðri innréttingu og sturtu. Einnig gengið út á verönd úr baðherbergi.
Þvottahús með innréttingu.
Stór og rúmgóður tvöfaldur bílskúr.

- Verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti.
- Góðar timbur útigeymslur fyrir garðhúsgögn og fleira.
- Steypt útigeymsla eða vinnuherbergi.
- Upphitað steypt bílaplan fyrir framan húsið og meðfram húsinu.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Einbýli
Stærð:
226 fm
Herbergi:
5
Stofur:
2
Svefnherbergi:
3
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2005
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
134.050.000
Brunabótamat:
117.400.000
Áhvílandi:
0