Opið hús: 23. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Vindakór 10-12, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. febrúar 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA 4RA HERB ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ MEÐ STÆÐI Í BÍLGEYMSLU VIÐ VINDAKÓR 10-12 Í KÓPAVOGI.Íbúðin sjálf er 106,8 fm. að stærð og sérgeymsla í kjallara er 9,1 fm. Samtals er eignin því skráð 115,9 fm.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Lyfta er í húsinu sem gengur niður í kjallara.
3 góð svefnherbergi.
Húsið er byggt af BYGG (Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars)
Uppl. hjá Óskari í síma 822-8750 ([email protected])
Nánari lýsing: Komið er inn í
anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu og góðum eldhústækjum.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Gangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi I með parketi á gólfum og fataskápum.
Barnaherbergi II með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtubaðkeri og innréttingu.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir sem er innangegnt inn í húsið.
Sérgeymsla er í kjallara.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.