Gerðarbrunnur 56, 113 Reykjavík.
Tveggja hæða einbýli á útsýnisstað í Úlfarsárdal.
Stutt í alla þjónustu, skóla og í aðstöðu til íþróttaiðkunnar.
Einstakt fimm herbergja fjölskylduhús, stór stofa og svalir í suður, tvö baðherbergi og Innbyggður bílskúr.
Húsið klætt að utan með steinflísum og áli. Gólfhiti er í öllu húsinu.
Íbúðin er skráð 209,2 fm. og bílskúr 31,8 fm. samtals 241 fm.. Byggt árið 2010.
Aðkoma er góð, hellulagt bílaplan með hita.
Lóðin er fullbúin.Nánari upplýsingar veitir Smári í síma 864-1362 ([email protected]).Nánari lýsing:Jarðhæð.
Gólfefni jarðhæðar eru flísar.
Komið inn í rúmgott anddyri með skápum.
Úr anddyri er innangengt í bílskúrinn.
Forstofan tengir saman jarðhæðina og þaðan er stigi á efri hæð.
Forstofuherbergi er mjög rúmgott og gólfsíðir gluggar.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu.
Geymsla með miklu hilluplássi.
þvottaherbergi er bjart og rúmgott.
Efri hæð.Gólfefni efri hæðar er parket, á blautými eru flísar.
Upptekin loft og innbyggð lýsing.
Hljóðvist er sérhönnuð fyrir efri hæð.
Breiður stálstigi með viðarþrepum tengir hæðirnar saman.
Frá stigapalli er útgengt á veröndina.
Borðstofa / stofa er mót suðri útgengt á svalir (12 fm.). Arinn.
Svalir eru flísalagðar og handrið með reyklituðu gleri.
Eldhús er með sérsmíðuðum innréttingum, miklu skápaplássi, búrskáp og tengt borðstofu.
Innaf eldhúsi er herbergi.
Á svefnherbergisgangi er hjónaherbergi sem er rúmgott og með fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með.upphengdu salerni og innréttingu.
Bílskúr er innbyggður með rafmagnshurða opnara og epoxy á gólfi.
Arkítekt hússins var Guðfinna Thordarson.
Byggingaraðili var Aðalvík ehf.
Sérsmíði innréttinga var Aðalvík ehf.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.