S: 562 4250
Jöfursbás 5, 112 Reykjavík
58.900.000 Kr.
Opið hús: 22. apríl 2026 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús: Jöfursbás 5, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 22. apríl 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ VIÐ JÖFURSBÁS 5B Í REYKJAVÍK. 

Við kynnum til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 55,9 fm. íbúð á jarðhæð með verönd í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi.
Gott skipulag en alrýmið er opið þar sem eldhús og stofa mætast í björtu rými.
Fallegt útsýni úr íbúð út á sjóinn.
Skjólgóð verönd sem stækkar íbúðina til muna á góðviðrisdögum.
Nýlegt hús þar sem frágangur er nútímalegur, viðhaldsléttur og í takt við nýjustu kröfur.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.
Tilvalin fyrstu kaup fyrir þá sem vilja njóta þæginda nýlegrar byggingar.

Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og fatahengi.
Eldhús með parketi á gólfi, opið á móti stofu með stílhreinni innréttingu, vönduðum tækjum og góðu skápaplássi sem nær alveg upp í loft. 
Stofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskápum.
Baðherbergi  með flísum á gólfi og veggjum að hluta til og fallegri innréttingu.Tengi fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign sem og hjóla og vagnageymsla. 

Frábært tækifæri til að eignast fallega eign á góðum stað þar sem stutt er í fallegt útivistarsvæði.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
55 fm
Herbergi:
2
Stofur:
1
Svefnherbergi:
1
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2024
Lyfta:
Fasteignamat:
52.200.000
Brunabótamat:
36.350.000
Áhvílandi:
0