Fjárfesting Fasteignasala og Smári Jónsson, löggiltur fasteignasali, kynna:
Fallega og vel skipulagða 3ja herbergja, 104 fm íbúð á 2. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Naustabryggju 13,
ásamt sérbílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með aðgengi að þvottastæði.
Húsið er álklætt að utan og því viðhaldslítið. Lyfta er í húsinu.
Naustabryggja 13 er staðsett í einu af sérstæðustu íbúðahverfum Reykjavíkur, þar sem nálægðin við sjóinn og náttúruna er í aðalhlutverki. Hverfið einkennist af rólegu andrúmslofti, fallegum arkitektúr og skjólsælum staðháttum við smábátahöfnina í Bryggjuhverfinu.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Smára Jónsson í síma 864-1362.Lýsing eignar:
Gólfefni íbúðarinnar er parket, nema í anddyri og blautrýmum þar sem eru flísar.
Sérherbergi/geymsla (5,5 fm) er á gangi framan við íbúðina.
Forstofa/hol: Flísalagt, með fataskápum.
Stofa: Stór og björt með útgengi á rúmgóðar svalir með pallaefni. Stofan er bæði nýtt sem setustofa og borðstofa.
Eldhús: Flísalagt, með fallegum mahóníinnréttingum, flísum á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél.
Baðherbergi: Flísalagt í gólf og veggi, með innréttingu og nýlegri walk-in sturtu.
Þvottaherbergi: Flísalagt, með vaski og góðum skápum.
Geymsla: Inn af þvottaherbergi, með búrskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott, með fataskápum.
Hjónaherbergi: Stórt, með fataskápum.
Skápar, hurðir og innréttingar eru úr mahóní, sem gefur íbúðinni hlýlegt og vandað yfirbragð. Baðherbergið hefur verið endurnýjað að hluta með nýlegri walk-in sturtu.
Í kjallara hússins eru:
Sérbílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með aðgengi að sameiginlegu þvottastæði
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun:
Smári Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 864-1362
Netfang:
[email protected]Húsið að utan er í góðu ástandi, álklætt og því viðhaldslítið. Sameign er mjög snyrtileg.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati (1,6% fyrir lögaðila, 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald fyrir hvert skjal er 3.800 kr.
Lántökugjald samkvæmt verðskrá fjármálastofnunar.
Umsýsluþóknun, sjá kauptilboð.