FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ FERJUBAKKA 12, Í REYKJAVÍK. Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð.
Íbúðin er skráð skv. HMS 98,3 fm., íbúðin sjálf er 84,2 fm. og stór geymsla í kjallara 14,1 fm.
Björt og hlý íbúð sem var mikið endurnýjuð að innan fyrir ca. 5 árum á smekklegan máta.
Húsið hefur verið mikið lagfært á undanförnum árum.Búið er að skipta um flesta glugga og gler í húsinu. Settir voru nýjir ofnar og lagnir í íbúðinni voru endurnýjaðar niður í stamma og er nú verið að fara að endurnýja/fóðra skólplagnir í húsinu.
Þakið var nýlega málað, yfirfarið og skipt um þakrennur. Húsið er nýlega málað að utan.
Búið að setja upp nokkrar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á sameiginlegu bílastæði. Næg bílastæði eru við húsið.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með parket á gólfi.
Mjög stór og björt
stofa og
borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á góðar svalir.
Opið
eldhús með parketi á gólfi og stórri fallegri innréttingu. Gott skápapláss og er hluti af innréttingu nýtt sem eyja.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi.
Stórt
hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Rúmgott
barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Stór
sérgeymsla í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð.
Snyrtileg sameign.
Stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.