FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU EINSTAKLEGA FALLEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ URRIÐAHOLTSSTRÆTI 11 Í GARÐABÆ. Glæsileg og rúmgóð 129,7 fm. útsýnisíbúð ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu fjölbýlishúsi
fyrir 50 ára og eldri.Vandað álklætt lyftuhús. Stórir gluggar í íbúð með stórkostlegu útsýni.
Tvö baðherbergi, björt alrými og vandaðar innréttingar.
Húsinu fylgir einstök sameign sem lyftir félagslífi og afþreyingu upp á hærra plan.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með fatahengi og parketi á gólfi.
Mjög stór og björt
stofa og
borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á góðar svalir.
Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Opið
eldhús með parketi á góli, eyju, fallegum innréttingum og vönduðum tækjum.
Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi innafherbergi með sturtu og góðri innréttingu.
Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með sturtu og góðri innréttingu
Þvottahús með innréttingu.
Í kjallara er
sérgeymsla og
stæði í bílageymslu. Í bílageymslu er aðstaða til að þvo bíla.
Einstök sameign sem er hugsuð sem framlenging á heimilinu. Kjörinn staður til að njóta lífsins, hreyfa sig og hitta nágrannan.
Glæsilegur samkomusalur sem er fullkominn fyrir fjölskylduveislur eða samveru.
Líkamsrækt með góðum tækjum til að halda sér í formi.
Pool-borð, tvö píluspjöld og
notalegt svæði fyrir leik og spjall.
Tveir golfhermar fyrir áhugafólk sem vill halda sveiflunni við allan ársins hring.
Kjörin fasteign fyrir þá sem vilja minnka við sig viðhald, auka lífsgæðin og búa í öruggu og lifandi samfélagi þar sem öll þjónusta og afþreying er innan seilingar.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.