Opið hús: 13. júlí 2026 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Vættaborgir 2, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA 4RA HERB ENDAÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ PALLI VIÐ VÆTTABORGIR 2 Í REYKJAVÍK.Um er að ræða fallega 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri timburverönd.
Íbúðin sjálf er 92,2 fm. að stærð og sérgeymsla er 4,4 fm. Samtals er eignin því skráð 96,6 fm.
Uppl. hjá Óskari í síma 822-8750 ([email protected])
Nánari lýsing: Komið er inn í
anddyri með fatahengi og flísum á gólfi (hiti er í gólfi undir flísum).
Gangur með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á stóra timburverönd með skjólgirðingum.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, parketi á gólfi, nýlegum eldhústækjum og borðkrók við glugga.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkeri með glerþili og innréttingu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi 1 með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi 2 með parketi á gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Árið 2023 var farið í framkvæmdir innanhús:Sett nýtt parket á gólf. Skipt um allar innihurðar, þröskuldalausar fyrir utan baðherbergi. Forstofa flísalögð og lagður gólfhiti. Bakaraofn og spanhelluborð endurnýjað.
Árið 2020 var farið í viðamiklar utanhússframkvæmdir:Húsið var sprunguviðgert og málað. Suður og austurhlið voru endursteinuð og gert við aðra steiningu eins og þurfti. Sléttir fletir voru viðgerðir og málaðir. Skipt var um þá glugga sem þurfti og aðrir voru viðgerðir. Gluggar og svalahurðir voru málaðar. Þakjárn var yfirfarið og málað og skipt um timbur í þakkanti þar sem þurfti og málaður. Svalagólf voru flotuð og máluð, tröppur og stigagangur að framanverður lagfærð. Skipt um allar lofttúður á þakinu og loftstokkar hreinsaðir.
Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.