Fjárfesting Fasteignasala og Jónas H. Jónasson LGFS eru með í einkasölu sumarbústað í Klettsflöt 5, Húsafelli, Borgarbyggð. Kjörið tækifæri fyrir laghenta og góð fjárfesting. Bústaðurinn varð fyrir vatnsskemmdum og þarfnast því viðgerðar og viðhalds. Skýrsla frá tryggingarfélagi fylgir með varðandi mat á tjóninu. Bústaðurinn er 22.2m2 en með möguleika á að stækka um allavega annað eins, fordæmi fyrir því á lóðum í kring, lóðin er eignarlóð 914m2 að stærð og vaxin trjám.Núverandi skipulag:Stofan er opin með eldhúskrók.
Baðherbergið er með sturtu og lítilli innréttingu.
Eitt herbergi og svefnloft yfir því og baðherbergi.
Pallur er í kring um húsið með heitum potti.
Rúmgóður skúr er einnig á pallinum sem er notaður sem útigeymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jónas H. Jónasson lögglitur fasteignasali í síma 842-1520 eða á [email protected]
Ertu að fara selja, hafðu samband og ég mun vinna með þér í gegn um allt söluferlið.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.