S: 562 4250
Langirimi 21-23, 112 Reykjavík
56.000.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA KYNNIR SKRIFSTOFU- OG VERSLUNARHÚSNÆÐI AÐ LANGARIMA 21-23 Í GRAFARVOGI
Til sölu 93,9 m² atvinnuhúsnæði á 2. hæð í verslunar- og þjónustukjarna við Langarima 21–23 í Grafarvogi.
Gott skipulag og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar.
Uppl. hjá Óskari í síma 822-8750 ([email protected]
Nánari lýsing: 

Opið aðalrými.
Hliðarrými sem hentar t.d. sem lítið lager- eða fundarherbergi,
Kaffistofa með fallegri nýlegri innréttingu (endurnýjuð árið 2018.
Salerni sem var endurnýjað árið 2018.
Lokaður sameignagangur er að eigninni og lyfta er í sameign.

Eignin var mikið endurnýjuð árið 2018. Þá var nýtt rafmagn lagt í létta veggi og lagnir í lagnastigum undir lofti. Jafnframt voru lagðir netkaplar og settar upp netdósir ásamt tengidósum víða í veggjum og lofti. Loftljós voru endurnýjuð og lagnaleiðir að þeim endurbættar. Gólf var flotað og sílanborið og gipsveggir settir upp á nokkrum stöðum.

Ljósleiðari er til staðar í eigninni.
Möguleiki er á að lagerhillur, þrjú skrifborð og sófi fylgi með, eftir samkomulagi.
Við húsið eru næg bílastæði og lóð er vel við haldið.
Öflug þjónusta í næsta nágrenni
Eignin er í rótgrónu og fjölbreyttu hverfi. Í húsinu eru meðal annars Rima Apótek, tvær hárgreiðslustofur, tveir veitingastaðir, tannlæknastofa og píanóskóli.
Strætóleið 6 stoppar beint fyrir framan húsið, sem tryggir gott aðgengi fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Húsfélagsgjald er um 50.000 kr. á mánuði.
Góð eign fyrir fyrirtæki sem leitar að vel staðsettu og snyrtilegu atvinnuhúsnæði með góðu aðgengi, bílastæðum og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati.  1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.  2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  4.  Umsýsluþóknun  sjá kauptilboð.

Tegund:
Atvinnuhúsnæði
Stærð:
93 fm
Herbergi:
1
Stofur:
0
Svefnherbergi:
0
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
1996
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
31.800.000
Brunabótamat:
43.650.000
Áhvílandi:
0