Pósthússtræti 7, glæsileg íbúð í nýlegu 7 hæða lyftuhúsi í Reykjanesbæ með fallegu útsýni.Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð með merktu stæði í bílakjallara. Eignin hefur sérsmíðaðar innréttingar frá Parka, vönduð heimilstæki frá Ormsson, aukna lofthæð, loftræstikerfi, þrefalt gler og svalalokun.
íbúð:
Viðar parket SF Oak Glaciers Natural er á allri íbúðinni.Forstofa rúmgóð með skápum.
Stofa og eldhús er í sameiginlegu rými, með vönduðum innréttingum sem ná upp í loft, mikið skápapláss. Útgengt úr eldhúsi á lokaðar svalir með hitara.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Innangengt er á baðherbergi.
Herbergi með fataskáp.
Baðherbergi flísalagt á gólfi og hluta af veggjum. Innrétting með spegla skáp, steinn á borði og vönduð innbyggð blöndunartæki.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi. Innrétting með vask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnu hæð.
Íbúðin nær útsýni til flestra átta yfir höfnina og fjallagarðinn í norður. Vestur útsýni með jökulinn í öllu sýnu veldi. Svalir eru vel staðsettar og ná sól fá hádegi og fram á rauða nótt.
Kjallari:Sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla. Þar er sameiginleg klakavél.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.