S: 562 4250
Álmakór 19, 203 Kópavogur
289.000.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, KYNNIR TIL SÖLU EINSTAKLEGA GLÆSILEGT OG VEL HANNAÐ EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ VIÐ ÁLMAKÓR 19 Í KÓPAVOGI. 
Einstaklega vandað og vel hannað staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum innst í botnlanga við Álmakór 19 í Kópavogi.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 312,7 fm. Til viðbótar er ca. 30 fm. óskráð rými sem nýtist innan hússins. Einnig er ca 80 fm. opið bílskýli með innbyggðri lýsingu og hleðslustöðvum.
Ósnortin náttúra er ofan við húsið og er víðáttumikið útsýni úr húsinu.
Rúmgóðar timburverandir, hellulögn með steyptum veggjum eru að mestu umhverfis húsið.
Vandaður tímalaus arkitektúr með sérhönnuðum innréttingum, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa náttúrulegri birtu inn í húsið.
Gegnheilt olíuborið eikarparket og flísar á gólfum.
Húsið er hannað af Sigurði Hallgrímssyni, innanhúshönnun var í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur, lýsing var hönnuð af Helga hjá Lúmex og garður, verandir og ytra umhverfi af Finni Kristinssyni hjá Landslagi.
Einstaklega fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 661-0804 ([email protected])

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa og hol með flísum á gólfi, innfelldum fataskápum og góðri lýsingu.
Geymsla/fataherbergi inn af holi með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi, gólfsíðum gluggum og útgengi á vesturverönd. Inn af herbergi er ca. 12 fm. gluggalaust rými með fataskápum sem nýtist í dag sem svefnaðstaða. (samtals um 24 fm.)
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu og innréttingu með miklu skápaplássi.
Unglingasvíta/studíóíbúð (rúmlega 30 fm.) með sérinngangi, parketi á gólfum, eldunaraðstöðu, gólfsíðum gluggum og útgengi út á verönd.
Efri hæð: 
Frá holi liggur breiður og bjartur parketlagður stigi upp á efri hæð með lýsingu. Stór gluggi hleypir náttúrulegri birtu inn í rýmin.
Eldhús er vandað með flísum á gólfi, fallegri innréttingu, stórri eyju með náttúrustein á borði, eldhústækjum frá Miele, öflugum háf með útsogi, tvöföldum ísskápi ásamt vínkæli frá Baco. Úr eldhúsi er gengið út á suðvesturverönd sem er að hluta til undir skyggni svo hægt er að njóta útiveru í góðu skjóli.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfum og gólfsíðum gluggum. Þaðan er rennihurð út á stórar svalir til norðurs með einstöku útsýni yfir borgina og víðar.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi er afstúkað frá opnu alrými.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, fallegri innréttingu og stórri sturtu. Frá baðherbergi og hjónaherbergi er gengið út á verönd með heitum potti.
Þvottahús með flísum á gólfi og veggjum, góðum innréttingum fyrir vélar í vinnuhæð og tveimur opnanlegum gluggum.

Geymsla er staðsett inn af bílaplani og innan hennar er stórt óskráð rými.
Opið bílskýli með innfelldri lýsingu og nægu plássi fyrir þrjá til fjóra bíla. Einnig eru bílastæði við hlið hússins fyrir þrjá til fjóra bíla.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 3800,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
 

Tegund:
Einbýli
Stærð:
312 fm
Herbergi:
6
Stofur:
1
Svefnherbergi:
5
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2014
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
230.300.000
Brunabótamat:
193.750.000
Áhvílandi:
0