S: 562 4250
Breiðavík 37, 112 Reykjavík
Tilboð

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, KYNNIR: 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ BREIÐAVÍK 37 Í REYKJAVÍK Á EFSTU HÆÐ MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI OG SUÐURSVÖLUM.

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð með sérinngangi af opnum stigagangi við Breiðavík 37 í Grafarvogi.
Eignin er skráð samtals 97,9 fm., þar af er 9,9 fm. sérgeymsla á jarðhæð.
Rúmgóðar svalir til suðurs.
Frá svefnherbergjum er glæsilegt útsýni yfir Sundin, Esjuna og Geldingarnes.
Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu og grónu íbúðarhverfi í Grafarvogi þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, verslun og þjónustu, auk fjölbreyttra göngu- og útivistarsvæða.

ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR STRAX. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Hildur í síma 661-0804 ([email protected])
Guðjón í síma 846-1511 ([email protected])

Nánari lýsing:

Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi. 
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús með parketi á gólfi, eikarinnréttingu og borðkrók. 
Þvottahús er innan íbúðar með dúk á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápum. Frá báðum herbergjum er einstaklega fallegt útsýni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, sturtu og baðkari.
Sérgeymsla (9,9 fm.) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Sérmerkt bílastæði fyrir framan húsið ásamt fleiri sameiginlegum bílastæðum á lóð.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 3800,- kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

 

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
97 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
1997
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
71.150.000
Brunabótamat:
57.900.000
Áhvílandi:
0